Samúð

Blóm sýna samúð

Á erfiðum tímum geta blóm sagt það við komum ekki í orð. Til þess eru margar leiðir færar, með kransi, kistuskreytingu, altarisvendi eða ljóskeri

Útfarakransar

Útfarakransar frá okkur eru alltaf sérhannaðir eftir óskum hvers og eins og yfirleitt eru engir tveir kransar eins. Tegundir og litir blóma geta verið ýmiskonar, allt eftir því sem kaupandi óskar. Þó skal hafa í huga að blóm eru árstíðarvara og sum ekki fáanleg allt árið um kring.

Ljósker

Ljóskerin eru hugsuð fyrir aðstandendur að taka heim eftir útför og tendra á kerti til minningar um ástvin eftir að útför hefur farið fram. Þessari skreytingu er ekki ætlað að fylgja kistunni út í kirkjugarðinn.

Kistuskreytingar

Kistuskreytingum er ætlað að hvíla ofan á kistunni í útförinni. Þær eru alltaf gerðar eftir óskum hvers og eins í hefðbundnu sniði geta verið sérhannaðar sé þess óskað.

Samúðarskreyting

Samúðarskreyting er oft skreyting í potti eða kertaskreyting.