Samúð
Flowers express sympathy
Á erfiðum tímum geta blóm sagt það sem við komum ekki í orð. Til þess eru margar leiðir færar, með kransi, kistuskreytingu, altarisvendi eða ljóskeri
Útfarakransar
Útfarakransar frá okkur eru alltaf sérhannaðir eftir óskum hvers og eins og yfirleitt eru engir tveir kransar eins. Tegundir og litir blóma geta verið ýmiskonar, allt eftir því sem kaupandi óskar. Þó skal hafa í huga að blóm eru árstíðarvara og sum ekki fáanleg allt árið um kring.
Ljósker
Ljóskerin eru hugsuð fyrir aðstandendur til að taka með heim eftir útför og kveikja á kerti til minningar um ástvin að útförinni lokinni. Þessari skreytingu er ekki ætlað að fylgja kistunni út í kirkjugarð.
Kistuskreytingar
Kistuskreytingum er ætlað að hvíla ofan á kistunni í útförinni. Þær eru alltaf gerðar eftir óskum hvers og eins í hefðbundnu sniði en geta verið sérhannaðar sé þess óskað.
Útfararblóm
Samúðarskreyting er oft skreyting í potti eða kertaskreyting.