Um Blómdísi

Aðeins um mig ;-)

Bryndís Eir Þorsteinsdóttir heiti ég og rek blómafyrirtækið Blómdís ehf. Ég byrjaði ung að árum að vinna við blóm eða 16 ára gömul og líkaði það strax vel. Leiðin lág því beint í Garðyrkjuskóla Ríkisins að Reykjum og útskrifaðist ég þaðan árið 2000 sem garðyrkjufræðingur af blómaskreytingabraut. Á meðan á námi stóð og eftir vann ég í Blómagallerí á Hagamel í Reykjavík.
2004 útskrifaðist ég sem útstillingahönnuður frá Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Eftir það vann ég um hríð í Garðyrkjustöðinni Birkihlíð á Dalvegi í Kópavogi og svo í Árbæjarblómum þar til við fjölskyldan fluttum austur í heimahaga mína í Hveragerði.
Ég starfaði sem verslunarstjóri hjá Garðyrkjustöð Ingibjargar sem síðar varð Garðyrkjustöðin Flóra til ársins 2016 samhliða því að vera stundarkennari í útstillingum í Garðyrkjuskólanum. 2017-2018 fór ég svo Norges Gröne Fagskole og útskrifaðist þaðan sem blómahönnuður.
Ég var svo brautastjóri Blómaskreytingabrautar hjá Garðyrkjuskólanum frá 2018-2024 þegar við ákváðum að stofna fyrirtæki í kringum öll þau verkefni sem við höfðum verið að vinna meðfram kennslunni og einbeita okkur alfarið að þeim.

Ídag eru verkefnin ýmiskonar, allt frá umhirðu pottaplantna hjá fyrirtækjum og stofnunum, setja sumarblóm í ker fyrir sveitafélög og fyrirtæki, brúðkaup, útfarir, blómvendir í áskrift og margt fleira, í raun allt sem viðkemur blómum.
Ég legg metnað minn í faglega og persónulega þjónustu. Ef þig vantar eitthvað tengt blómum í líf þitt get ég alveg örugglega hjálpað.
Ég er einnig á samfélagsmiðlum undir nafninu Blómdís og reyni að koma þar með ýmiskonar fróðleik og sýna frá verkefnum mínum svo endilega fylgdu mér þar.